04desember

Ađventa

Hvað gerðist eiginlega...síðast þegar ég vissi var september og skólin nýbyrjaður. Núna er allt í einu er kominn desember og bara 10 dagar þangað til að ég fer í vestur í jólafrí, sem by the way er í HEILAN MÁNUÐ!
Tíminn líður stundum aðeins of hratt, mér líst ekki alveg á að ég sé hálfnuð með námið hérna á Hvanneyri.

Hérna kemur listi yfir það helsta sem hefur á daga mína drifið í haust
Skólinn:
- hjólastólarallý þar sem við könnuðm aðgengi að byggingum á Hvanneyri
- hannaði veg og sólpall...reiknaði svo út landfyllingu, gerði deiliteikningar, verklýsingu og kostaðaráætlun
- vettvangsferðir í MEST, Nýsköðunarmiðstöð Íslands ofl.
- komst að því að mér finnst jarðvegsfræði virkilega skemmtileg og áhugaverð. Það getur greinilega allt gerst!
- gerði eitt stykki umhverfislistaverk
- föndraði 2 líkön af torgum
- endurskipulagði Austurvöll í RVK
- lærði þónokkuð mikið á Microstation, og er aðeins að byrja á InDesign

Önnur skemmtilegheit
- eldaði diskamotturnar mínar...tók heillangan tíma að reykræsta íbúðina og losna við brenndu plastlyktina
- afmæli hjá Kríu á Laugum
- ball með Hitakút
- átti nokkrar kósýstundir með Sif og Alberti
- þónokkur eldasaman-bekkjarpartý
- drekktu betur Gúu og Sólu
- vísindaferð í Frjó og Vélfang
- hrútauppboð og árshátíð...
- og að sjálfsögðu frábærlega skemmtilegir árshátíðarnefndarfundir, bollublöndun, atkvæðatalning ofl.
- kokteilakvöld Jóa
- Hawai vs. Rambó þema djamm
- listinn gæti haldið áfram þónokkuð lengi...nenni ekki að skrifa meira


Á fyrsta í aðventu fór ég með Guðrúnu, Gúu, Huldu og Andreu í Borgarnes á kveikjaájólatrénu-skemmtun. Við stóðum úti á túni í hörkufrosti, með jólasveinahúfur á kollinum, þambandi fleiri lítra af súkkulaði og syngjandi jólalög hástöfum með pínlítiðfalska barnakórnum. Alveg að taka þátt á stemningunni sko...en svo kom að því að kveikja átti á jólatrénu. Ég taldi niður ásamt öllum hinum og svo búmm...vonbrigði ársins!!
Serían á trénu var MARGLIT...ohh það sem ég varð fyrir miklum vonbrigðum.
Sem betur fer er tréð okkar hér á Hvanneyri með hvítri seríu.

Ísafjörður eftir 10 daga...mér sýnist á skipulaginu frá Eygló að það verði ekki mikið frí;) Það þarf að þrífa, skreyta, baka, læra að prjóna sokka og vettlinga, djamma, hlaupa af sér skóla og svo jólaspikið, skrifa jólakort, djamma, kaupa jólagjafir, pakka þeim inn, djamma....ábyggilega margt fleira. Ég er örugglega að gleyma einhverju:)
En ég hlakka samt ótrúlega til að komast heim og gera alla þessa hluti, hef ekkert farið heim í allt haust!

Jæja, best að einbeita sér að SÍÐASTA tímanum á þessu ári!
Á bara eftir að klára 3 verkefni, fara í eitt lítið próf og svo er komið fríSmile

Sjáumst fyrir vestan...eða á barnum í kvöld;)
04. desember 2008 klukkan 10:11
Sóley Valdimarsdóttir
11 athugasemdir
20október

No bloggedí

Þegar maður bloggar ekki í prófalestri...er þetta þá ekki bara búið?







20. október 2008 klukkan 21:00
Sóley Valdimarsdóttir
6 athugasemdir
23september

Nei nú gengur ţetta ekki lengur!

Ég er orðin ansi þreytt á að vera andvaka, kvöld eftir kvöld. Það er alltof hljótt í fjölbýlishúsinu mínu...verð endilega að fara að fá mér klukku sem tifar geðveikislega hátt, því þá get ég talið tifin og séð fyrir mér taktmæli. Það svæfir mig alltaf.
Ég gæti trúað að þessi væri passlega hávær.



Annars ekkert nýtt...veit ekki ennþá hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, og kannski er bara ekkert betra að ákveða það fyrirfram. Læt það bara koma í ljós að sjálfu sér, ótrúlegt hvað það virkar oft.

Ég sá fjöll í gærmorgun...fjöll með gráu og hvítu í toppunum. Jess, það þýðir að það er að koma vetur og honum fylgir (vonandi) fullt, fullt af snjó! Hlakka til að fara út að leika í snjónum...verst að það er enginn almennileg sleðabrekka hérna á Hvanneyri, bara ansi aumingjalegur hóll.



Hvernig stendur á því að þegar maður er andvaka, kannski í nokkra klukkutíma, þá þrjóskast maður alltaf við og byltir sér endalaust að reyna að sofna...þó að það sé vitað mál að það er ekki að fara að gerast. Meina, maður ætti nú kannski bara að nýta tímann í að læra eða eitthvað annað gagnlegt þangað til að þreytan tekur yfirhöndina....right, sé það ekki gerast ;)

En jæja, önnur tilraun. Held að ég prufi að telja kindur í þetta skipti.
23. september 2008 klukkan 01:15
Sóley Valdimarsdóttir
2 athugasemdir
13september

Hitt heim


Elsku Hvanneyri...þar sem fimmtudagar eru föstudagar og mánudagarnir eru alls ekkert verri en aðrir dagar.



Fyrstu vikuna í skólanum héldum við að mestu til í Grasagarðinum í Reykjavík þar sem hvert einsta tré og runni var grandskoðað og greint. Önnur vikan fór öll í hellulagnir og nýnemasprellsundirbúning. Það var því ekki fyrr en í þriðju viku að við þurftum að sitja í fyrirlestrum á ný. Enn sem komið er lofar veturinn þó góðu.
Ásamt því að vera búin að læra að helluleggja, hlaða steinvegg og læra 75 latnesk plöntuheiti utanað...þá veit ég líka núna hvað vömb, keppur, laki og vinstra eru og hver tilgangur þeirra er. Svo kann ég líka að reikna út fóðureiningu á mjólkurlítra. Fjölbreytt nám? Mæli með þvíBrosandi

Annars hefur fáránleg tilvistarkreppa herjað á mig síðustu daga. Ég asnaðist til að ætla að taka þátt í einhverri áhugasviðskönnun þar sem ég var beðin að skrifa niður 3 draumastörfin mín...ég komst ekki lengra með könnunina því ég hef ekki eina einustu hugmynd um hvað ég vil vinna við þegar ég verð stór!
Ég veit bara að mig langar ekki að vinna við tölvur allan daginn, vil helst vinna úti. Og ekki væri verra að geta ráðið sér nokkurnvegin sjálfur.
Er hægt að vera fullkomlega hamingjusamur ef maður er í vinnu sem gerir mann ekki ánægðan?
Óboj, það eru bara allt, allt of margir möguleikar í boði...hausinn á mér hringsnýst.
En ég er nú samt ekkert að fara að hætta í skólanum sko, langt því frá. Mér finnst þetta geðveikt skemmtilegt nám sem ég er í...vandamálið er að ég veit ekki hvort mig langar til að vinna við það í framtíðinni. Það er kannski bara seinni tíma vandamál?

Alltaf þegar ég fer að efast um framtíðina fæ ég þetta eirðarleysi í kroppinn sem endar með því að ég  fer á flakk...á flakki þarf maður nefnilega ekki að hugsa um framtíðina, heldur bara daginn í dag.
Sem minnir mig á það....ég á alltaf eftir að fara til Afríku og vinna við hjálparstarf einsog mig hefur langað til að gera í rúm 10 ár. Spurning hvort að það sé bara málið?

13. september 2008 klukkan 17:52
Sóley Valdimarsdóttir
8 athugasemdir
10ágúst

Mjólkurferna dagsins...blá mjólk, ađ sjálfsögđu.


Blómið
Ég er:
Sóleyin á enginu,
fífillinn í túninu,
gleymmérei og baldursbrá.
Villta rósin á runnanum.
Ég er villiblómið,
fagra illgresið.
Ég fæst ei í blómabúð.
Svo vinsamlegast ekki slá mig í burtu.


Mikið óskaplega vildi ég að ég hefði verið svo klár að yrkja þetta flotta ljóð, en það var ég víst ekki...heldur bara einhver Hanna Lísa í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Mér verður hugsað til þessara orða í hvert skipti sem ég hrifsa upp með rótum nýja og nýja plöntu í plöntusafnið mitt sem stækkar óðum...reyndar ekki óðum, það gerist víst frekar hægt.

Hvanneyri eftir 2 stuttar vikur, þær mættu samt alveg vera styttri.
10. ágúst 2008 klukkan 20:05
Sóley Valdimarsdóttir
4 athugasemdir
31júlí

Er eitthvađ ađ frétta?

Neeei, bara þetta sama gamla.

Það er alltaf nóg að gera í vinnunni; er mest í því að flokka sýni, telja orma og önnur nánast ósýnileg dýr þessa dagana.
Fengum til okkar húsamús í síðustu viku; hún fékk glæsilegt heimili í 3 herbergja hamstrabúri sem staðsett var uppi á borði við hliðina á mér. Ég gaf henni matarkex, múslí og kanilskonsu að éta...en hún starði bara á mig með tárin í augunum og eftir heilan dag gat ég ekki meira og sleppti henni.
Við erum með fleiri gæludýr...tvær krossköngulær í búri sem heita Emma og Bolla. Bolla hámar í sig fiskiflugur alla daga en Emma er þunglynd og kúrir sig bara út í horn. Og svo erum við líka með risa snigilinn Ketil...sem er alltaf að reyna að strjúka og skilur eftir sig slímuga slóð á öllum veggjum:)

Fjölskyldan mín er búin að vera einstaklega frjósöm í sumar...ég er orðin 3 frændsystkinum ríkari. Ætla einmitt að kíkja í nýjasta prinsinn á helginni:)

Það munaði litlu að ég yrði heilum vísifingri fátækari við eldamennskuna í síðustu viku. Það var ekkert voðalega sniðugt að opna pokann með frosna grænmetinu með beittasta hnífnum í skúffunni...pínu klúður, en ég hélt puttanum.

Tvíkímblöðungarnir fyrir plöntusafnið eru allir komnir í pressun, sumir eru tilbúnir og bíða þess að verða límdir á blað. Þá eru bara eftir helvítis grösin, störin, stráin og hærurnar.

Svanhildur bauð mér að koma í mat inn í Hvítanes á sunnudaginn, og Bubbi kenndi mér að mjólka í leiðinni:)

Við pabbi röltum niður á höfn í gær og keyptum 5kg stykki af glænýrri hrefnu beint úr bátnum hjá hrefnu-Konna...skelltum henni svo beint á grillið og borðuðum með bestu lyst!

Get ekki beðið eftir að komast í helgarfrí...verð búin að vera að vinna í 20 daga samfellt á föstudaginn.

Bíddu nú við...var svo kannski bara eitthvað að frétta eftir allt saman? Glottandi
Hafið það gott á helginni elskurnar mínar!
31. júlí 2008 klukkan 00:07
Sóley Valdimarsdóttir
1 athugasemd
15júlí

Stundum er eins og ég fái allt sem ég vil, og mér finnst ég alveg ótrúlega heppin.

Í morgun var ég tildæmis byrjuð á bloggi um veðrið...og að það mætti nú alveg fara að stytta upp svo ég gæti nú farið að tína fleiri plöntur í þetta blessaða plöntusafn mitt. Það var grenjandi rigning, skítakuldi og svo þétt þoka að þegar ég keyrði framhjá Ósvör sást ekki í Bolungavík!
Veðurspáin sýndi bara áframhaldandi rigningu og þoku. En, viti menn...núna sést ekki ský á himni og gluggaútsýnið bendir til þess að það sé logn líka:)
Frekari dæmi um hluti sem gerast akkurat á þeim tíma sem ég bið um það og detta óvænt upp í hendurnar á mér eru tildæmis þessi vinna sem ég er í, Pablo minn kæri, hróaskeldumiðarnir, það að ég náði vistfræðiprófinu (sem var ekkert nema 100% heppni) og margt fleira.
Eru þetta allt tómar tilviljanir eða á ég mína eigin álfkonu sem gerir allt sem ég bið um?

En innst inni er ég samt alltaf að bíða eftir að eitthvað slæmt komi fyrir, því varla getur maður alltaf verið svona heppinn. Eða hvað?
15. júlí 2008 klukkan 16:07
Sóley Valdimarsdóttir
4 athugasemdir
09júlí

Komin heim og hćtt ađ flakka...í bili ađ minnsta kosti

Hróaskelda var náttúrulega bara snilldsnilldsnilld út í gegn!
Ætla ekki að reyna að lýsa henni neitt frekar, þið verðið bara að fara sjálf einn daginn til að skilja þettaBrosandi

Fékk gömlu vélina frá pabba og mömmu lánaða því mín er ennþá í viðgerð, tók bara örfáar myndir samt og er búin að skella þeim inn.
09. júlí 2008 klukkan 21:27
Sóley Valdimarsdóttir
2 athugasemdir
03júlí

Komin og farin og komin og farin og komin og farin aftur...


Búin að fara í útilegu í Bjarkalundi. Það var nú mikið gaman og mikið grín.
Geggjað veður - gott fólk - mikið um ísbirni og íbjarnaveiðar – fórum á brennu - grilluðum pylsur í deigi - fórum í sund á Reykhólum og að Laugum - knúsuðum kálfana í Mýrartungu - fórum á ströndina og byggðum stíflur – grilluðum sykurpúða – drukkum örlítið áfengi – og svo aðeins meira áfengi – nánast engin þynnka í gangi...eða svona til að byrja með. 

Vikan á Hvanneyri var æði. Veðrið hélt áfram að vera geggjað, og það var frábært að geta verið úti í náttúrunni og skoðað eitt og eitt strá og blóm. Reyndar voru þetta víst aðeins meira en eitt og eitt...meira svona milljón og tíu tegundir sem mælt var með að rífa upp með rótum og kremja svo á síðum Fréttablaðsins. Ég nennti bara ekki að stússast í því akkurat þá...svo þarf ekki að skila þessu fyrr en í september þannig að ég er bara góð, held ég. Þetta reddast, hæggi?
 

Er ekki búin að taka eina einustu mynd í allt sumar, alveg glatað. En myndavélin mín tók upp á því að bila síðasta daginn á Hvanneyri og er búin að vera hjá lækninum síðan í byrjun júní. Henni fer vonandi að batna bráðum, ég sakna hennar.
 

Samkomulag okkar Pablo gæti ekki verið betra. Hann er ljúfur og góður og malar í hvert skipti sem ég sný lyklinum í svissinum. Hann er reyndar ekki hrifinn af því að ég tali í símann þegar ég er að keyra...fór að blikka einhverju vélarbilunarljósi í jómfrúrferðinni okkar þegar ég svaraði í símann á keyrslu. Um leið og ég hætti að blaðra fór það og hefur ekki sést síðan.
 

Jæja, ég má bara ekkert vera að þessu lengur því við Pablo erum einmitt að leggja af stað suður enn og aftur. Komum við í Mýrartungu og sækjum Kríu, brunum á Hvanneyri og sækjum vegabréfið mitt, því næst í Kringluna að redda símanum hennar Kríu og svo bara út á völl!  Gleðigleði spennaspenna!!
03. júlí 2008 klukkan 11:05
Sóley Valdimarsdóttir
4 athugasemdir
20júní

Ohhh, ekki aftur...

Þetta gerist á hverju einasta sumri, en alltaf kemur mér það jafn mikið á óvart. Áður en ég veit af eru nánast allar helgar sumarsins fyrirfram ákveðnar og í ljós kemur hversu óskaplega stutt sumarið okkar virkilega er. Og alltaf verð ég jafn hissa þegar ég átta mig á þessu. Kannski er smá séns að ég verði búin að ná þessu þegar ég verð orðin 54 ára.

Vitiði hvað...já ætli það viti þetta ekki orðið allir sem lesa þetta... en ég er að fara á Hróaskeldu!!! Svalur
Vann 2 miða á
www.monitor.is og ætlar Kría að vera svo yndisleg að koma með mér þar sem að hún Tinna mín verður upptekin við kokkteiladrykkju á Spáni. Átti gott spjall við hana í gær þar sem hún gaf mér nokkur góð niðurpökkunarráð og pantaði símtal frá mér ef Radiohead taka Karma Police...sem er eins gott að þeir geri by the way...en ég skulda henni frá því í fyrra þegar hún hringdi í mig frá Red Hot Chili Peppers.

Ég á bíl...keypti hann í gær og fæ hann á eftir. Ætla að bruna á kagganum í Bjarkalund og liggja úti með sætu Hvanneyrarskvísunum mínum um helgina.
Bruna svo á Hvanneyrina og verð þar alla næstu viku á plöntunámskeiði.
Vinn svo 4 daga, fer á Hróa, fer beint í 3 daga felt í Héðinsfirði, svo Ísafjörður og þá verður Ingibjörg vonandi komin vestur! Brosandi

Ohhh....ég bara ELSKA sumarið!!


ps. Skráði mig í einn valáfanga fyrir haustið...Búfjárrækt I
Glotti þeir sem glotta viljaGlottandi

20. júní 2008 klukkan 14:04
Sóley Valdimarsdóttir
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er svo ţessi ég?

  • Nafn: Sóley Valdimarsdóttir
  • Netfang: soleyvald@gmail.com
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Símanúmer: 8670386

Myndir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan